Rafræni aðstoðarkennarinn 

 

Operationer

 

Velkominn á námskeiðið Rafræni aðstoðarkennarinn. 

 

 

Fyrir hverja er námskeiðið?

 

Þetta  námskeið er fyrst og fremst hugsað sem stuðnings – og upprifjunarnámskeið fyrir þá nemendur sem eru að hefja nám aftur, jafnvel eftir langt hlé. Aðrir sem vilja rifja upp fyrri kunnáttu geta líka nýtt sér þetta námskeið.

 

Tilurð þessa námskeiðs

Höfundar verkefnisins fundu fyrir aukinni þörf nemenda á upprifjun í dönsku og hófust  handa við að safna saman á einn stað efni sem þegar er til á netinu um dönsku og danskt mál auk þess sem nýtt efni var samið.Tók verkefnið á sig form námskeiðs sem var algerlega á sjálfsnámsformi og fór fram á veraldarvefnum. 

Styrkur fékkst til  þessa verkefnis bæði frá Nordplus og Menntamálaráðuneytinu og er þessum aðilum færðar bestu þakkir fyrir veittan stuðning.

 

 

Hvernig fer námskeiðið fram?

Um er að ræða sjálfsnám sem fer að öllu leyti fram á netinu. Námskeiðsvefur þessi er opinn öllum, þeim að kostnaðarlausu. Námsefninu er skipt upp í lektioner (kennslustundir) sem ætlast er til að fylgt sé í ákveðinni röð og kemur það skýrt fram.

 

Hvernig er hægt að byrja?

 

Þetta þarf að vera til staðar við upphaf námskeiðs:

 

  1. Málfræðibókin  Sådan siger man eftir Hafdísi Ingvarsdóttur og Kirsten Friðriksdóttur. (fæst í flestum bókabúðum).
  2. Aðgangur að tölvu/neti.

 

Það þarf að búa til notendanafn og lykilorð sem þarf til að komast inn í og áfram í verkefnunum. Það er gert til að nemendur geti hætt þegar þeim hentar og haldið svo áfram þar sem frá var horfið.  Til þessa að stofna notendanafn smellið hér  eða sjáið hér til hliðar.

 

Annað:

 

Við hvetjum ykkur til að byrja strax og lesið vel allar leiðbeiningar.  Gangi ykkur vel.

 

Björg Hilmarsdóttir og Málfríður Þórarinsdóttir dönskukennarar við Háskólann í Reykjavík.